Um skólann

Við leggjum áherslu á að nemendur séu virkir í eigin námi. Það gerum við t.d. með því að vinna með áhugasvið nemenda. Hver og einn nemandi lærir því á sínum forsendum og hefur mikið um nám sitt að segja.

Tónholt er ekki námskrárbundinn skóli.

Námskeiðin eru í 10 – 12 vikur en alltaf er hægt að fá styttri námskeið og einnig er í boði að kaupa staka tíma.

Þeir sem ekki komast á námskeið geta fengið kennslu í gegnum Skype, Zoom og Facetime.

Hafir þú áhuga á að skrá þig á námskeið í Tónholti getur þú sent tölvupóst á gitarar@gmail.com

Eigandi Tónholts er Þráinn Árni Baldvinsson.

Tónholt er á Facebook 

Tónholt er líka á Youtube en þar er hægt að skoða kennslumyndbönd fyrir byrjendur og lengra komna.